Hleð Viðburðir

Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu.

Tónleikarnir verða samtals tíu talsins og munu hinir ýmsu píanóleikarar ganga til liðs við Guðnýju, en þær Guðný og Jane hefja leikinn þann 28. janúar.

Tónleikarnir fara fram á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast kl. 12:15. Hægt verður að kaupa miða á fimm fyrstu tónleikana með afslætti á samtals 12,500 eða staka miða á 3000. Miðasala verður á midi.is. Afsláttur fyrir námsmenn, eldri borgara og öryrkja.

Einnig býðst að bóka helgarbruch með afslætti í veitingastofum Hannesarholts á kr.2500 í tengslum við tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904.

28. JANÚAR:
Píanóleikari: Jane Sutarjo

Sónata í C-dúr KV 6   í París 1764

Andante og Fúga í A-dúr KV 402  Vín 1782 (Klárað af M. Stadler)

Sónata í B-dúr KV 378  Salzburg  1779

Næstu tónleikar í röðinni eru þessir:

  • 25. FEBRÚAR:Píanóleikari: Anna Guðný Guðmundsdóttir
  • 25. MARS: Píanóleikari: Gerrit Schuil
  • 29. APRÍL:Píanóleikari: Bjarni Frímann Bjarnason
  • 24. JÚNÍ: Píanóleikari: Delana Thomsen

Upplýsingar

Dagsetn:
28/01/2018
Tími:
12:15
Verð:
kr.3000
Viðburður Category:
Vefsíða:
https://midi.is/tonleikar/1/10291/Mozartmaraton-tonleikarod

Skipuleggjandi

Guðný Guðmundsdóttir