Hleð Viðburðir

Farfuglatónleikar Hannesarholts

30. desember kl. 12.00 – 22.00

Fyrstu tónleikar dagsins eru tónleikar Inga Bjarna Skúlasonar:

Ingi Bjarni lagði stund á jazz-píanó nám í Tónlistarskóla FÍH og útskrifaðist þaðan árið 2011. Vorið 2016 lauk hann bachelor prófi við Konunglega Tónlistarháskólanum (Koninklijk Conservatorium) í Den Haag, Hollandi. Þar hafa kennarar hans á meðal annara Jasper Soffers, Juraj Stanik og Eric Gieben. Hann hefur einnig sótt tíma til bandaríska píanóleikarans Aaron Parks.  Allt frá því að hann byrjaði að læra í Tónlistarskóla FÍH hefur hann verið virkur tónlistarflytjandi. Í stuttu máli mætti segja að Ingi Bjarni hefur leikið eigin tónsmíðar með fjölda fólks á Íslandi og í Evrópu. Ásamt því að vera virkur tónlistarflytjandi hefur Ingi Bjarni fengist við kennslu og undirleik. Sumarið 2015 gaf Ingi Bjarni út sinn fyrsta geisladisk sem kallast „Skarkali“. Diskurinn inniheldur níu lög fyrir tríó sem sum hver endurspegla það að vera Íslendingur í skarkala erlendrar stórborgar. Diskurinn fékk ágætis dóma frá erlendum jazztímaritum. Nýr tríó diskur Inga Bjarna var tekinn upp 14. október síðastliðinn og stefnt er á útgáfu á næsta ári. Meðspilarar hans þar eru þeir Magnús Trygvason Eliassen á trommum og hinn færeyski Bárður Reinert Poulsen á bassa.
Sem stendur er Ingi Bjarni á lokaári sínu í mastersnámi sem kallast Nordic Master: The Composing Musician. Þar stundar hann nám í píanóleik og tónsmíðum. Námið fer fram í Osló, Kaupmannahöfn og Gautaborg, ein önn á hvorum stað.
Í mars 2014 var Ingi Bjarni tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna í flokkinum Bjartasta vonin í sígildri- og samtímatónlist og jazzi.
Ingi Bjarni hefur þó nokkrum sinnum komið fram á Jazzhátíð Reykjavíkur. Einnig hefur hann spilað á alþjóðlegum jazzhátíðum líkt og Copenhagen Jazz Festival, Vilnius Jazz Festival í Litháen, Lillehammer Jazz Festival í Noregi og Jazz in Duketown í Hollandi. Þar að auki hefur hann komið fram á ýmsum minni tónleikum á Íslandi, Svíþjóð, Eistlandi, Lettlandi, Færeyjum, Belgíu og Hollandi.
Með honum leikur Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló

Upplýsingar

Dagsetn:
30/12/2017
Tími:
12:00
Verð:
kr.2500
Viðburður Category:
Vefsíða:
https://midi.is/tonleikar/1/10285/Farfuglar-Ingi_Bjarni_Skulason

Skipuleggjandi

Hannesarholt