Tónleikar á 100 ára afmæli sjálfstæðis Lettlands
17/03/2018 @ 15:00
| kr.2500Lettnesku tónlistakonurnar Dr.Dzintra Erliha, píanó, og Emma Aleksandra Bandeniece, selló, halda tónleika í Hannesarholti, laugardaginn 17. mars kl. 15:00. Tilefnið er 100 ára afmæli sjálfstæðis Lettlands. Lettar gleyma því ekki að íslendingar voru fyrstir þjóða til að veita stuðning þegar Lettland lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum árið 1991, í tíð Jóns Baldvins Hannibalssonar sem utanríkisráðherra.
Þrátt fyrir ungan aldur hafa þær báðar, hvor á sínu sviði, skipað sér á bekk með bestu hljóðfæraleikurum Lettlands. Dr. Dzintra Erliha hefur m.a. unnið til fjölda verðlauna í alþjóðlegum píanósamkeppnum og Emma Aleksandra Bandeniece hefur spilað með helstu hljómsveitum Lettlands og spilar reglulega fyrir utan heimalandið.
Á efnisskránni verður aðallega kammertónlist eftir lettnesk tónskáld: J. Medins, I.Ramins, J.Ivanovs, D.Aperane, P.Vasks, S.Buss og L.Garuta, en Dr. Dzintra Erliha er doktor í tónsmíðum L.Garuta.
Dzintra heldur einnig tónleikafyrirlestur í Listaháskólanum í Skipholti 31 föstudaginn 16.mars kl.12.30.