Byggingarár
Rafrænar upplýsingar á netinu um þetta hús við Þingholtsstræti 35 eru af skornum skammti. Þó má sjá á vef Húsafriðunarnefndar að húsið ku vera byggt árið 1912 og fær styrki úr Húsverndarsjóði árið 1997 og 1998.
var _gaq = _gaq || []; _gaq.push(['_setAccount', 'UA-38855006-1']); _gaq.push(['_trackPageview']);
(function() { var ga = document.createElement('script'); ga.type = 'text/javascript'; ga.async = true; ga.src = ('https:' == document.location.protocol ? 'https://ssl' : 'http://www') + '.google-analytics.com/ga.js'; var s = document.getElementsByTagName('script')[0]; s.parentNode.insertBefore(ga, s); })();
Húsið í dagblöðum liðinna tíma
Upplýsingarnar hér á eftir eru engan veginn tæmandi en settar fram eftir bestu vitund. Allar leiðréttingar og viðbætur eru vel þegnar.
Mikið var um auglýsingar eftir stúlkum til húsverka/hreingerninga og auglýsingar um herbergi til leigu, gegn t.d. hreingerningum alveg fram á árið 1950. Eftir það er nánast ekkert af húsinu að frétta í gegnum dagblöð.
- 1925: Kensla i ensku og dönsku. Friðrik Björnsson, Þingholtsstræti 35 (augl.)
- 1933: Páll Jónsson, kaupmaður er skráður til heimilis í húsinu (heimild)
- 1936: Herbergi með forstofuinngangi, tíl Ieigu í Þingholtsstræti 35 (augl.)
- 1942: Nokkrir menn geta fengið keypt fæði í Þingholtsstræti 35 (augl.)
- 1942: Hjer með tilkynnist ættingjum og vinum, að ekkjufrú Caroline Jónassen andaðist að heimili sínu Þingholtsstræti 35 aðfaranótt 22. þ.m. (tilkynning)
- 1942: Unglingsstúlka óskast strax. – Hátt kaup. Uppl. Þingholtsstræti 35 (augl.)
- 1943: Húsnæði, fæði og hátt kaup geta nokkrar stúlkur fengið. – Uppl. Þingholtsstræti 35 (augl.)
- 1950: Herbergi til leigu gegn gólfþvotti tvisvar í viku. Uppl. eftir kl. 5 e. h. í Þingholtsstræti 35 (augl.)