2025-12-18T00:00:00+00:00
  • Innlit – Hildur Björnsdóttir

    Hannesarholt veitingastofur 1.hæð

    Opnun sýningar á verkum Hildar Björnsdóttur í veitingastofum Hannesarholts.

  • Bókakaffi – Halldóra Thoroddsen

    Hannesarholt veitingastofur 1.hæð

    Halldóra Thoroddsen býður til bókakaffis í Veitingastofum Hannesarholts. Til umfjöllunar er nýjasta bók hennar Tvöfalt gler en Halldóra hlaur Fjöruverðlaunin 2016, bókmenntaverðlaun kvenna, í flokki fagurbókmennta fyrir bókina.

  • FLASHBACK – útgáfutónleikar Duo Ultima

    Hljóðberg

    Í tilefni þess að út er kominn fyrsti geisladiskur dúettsins, undir titlinum FLASHBACK heldur dúettinn sérstaka útgáfutónleika í Hannesarholti þann 4. mars kl. 20.00.

    kr.2000
  • Í návígi – Domenico Codispoti

    Hjóðberg Grundarstíg 10, Reykjavik, Reykjavík, Iceland

    Á tónleikum sínum í Hannesarholti leikur Domenico Codispoti úrval af stuttum verkum eftir vel þekkt tónskáld, sem hann hefur í gegnum tíðina leikið oft sem aukalög. Þetta er aðgengileg og falleg efnisskrá og uppskrift að notalegu síðdegi, sem allir ættu að geta notið.

    kr.3000
  • Bókmenntaspjall – Páll Baldvin Baldvinsson

    Hannesarholt Grundarstígur 10, Reykjavík

    Bókmenntaspjall með Páli Baldvinsyni þar sem verk hans Stríðsárin 1938-1945 verður til umfjöllunar Í erindi sínu mun Páll kynna þetta magnaða verk og fjalla um nokkra þætti þess með myndum frá þessu örlagaríka tímabili í sögu þjóðarinnar.

    kr.1000
  • Már Gunnarsson styrktartónleikar

    Hljóðberg

    Hinn ungi og efnilegi píanóleikari Már Gunnarsson efnir til styrktartónleika vegna hljóðfærakaupa með honum verða; Herbert Guðmundsson, Geir Ólafsson, Ívar Daníels, Magnús Hafdal, Ísold Wilberg og Ágúst Ingvarsson

    kr.5000
Go to Top