2025-12-14T00:00:00+00:00
  • Bókmenntaspjall – Elsku Drauma mín og Ósjálfrátt

    Hljóðberg

    Hver er munurinn á því að skrifa ævisögu og skáldsögu? Höfundar bókanna Elsku Drauma mín og Ósjálfrátt, Þær Vigdís Grímsdóttir og Auður Jónsdóttir, ræða reynslu sína af því að fanga sömu bráðina í net ólíkra forma. Þriðja skáldkonan, Kristín Ómarsdóttir, leiðir umræðurnar og yfirheyrir þær eftir bestu getu – með aðstoð áhorfenda.

    kr.1500
  • Davíðsljóð í Hannesarholti   

    Þótt Davíð Stefánsson sé best þekktur sem ljóðskáld, var leiklistin honum einnig mjög hugleikin og hann sendi frá sér fjögur leikrit, auk ljóðabókanna 10 og skáldsögunnar Sólon Íslandus. Í þessu spjalli mun Valgerður H. Bjarnadóttir fjalla um leikritin, tengja þau ljóðunum og velta fyrir sér hvað skáldinu lá á hjarta og hvernig leikritin endurspegla hugmyndir hans og líf.

    kr.1500
  • Tunglið í nóttinni – Kristjana Stefánsdóttir og Kvartett Sigurðar Flosasonar

    Hljóðberg

    Kristjana Stefánsdóttir og Kvartett Sigurðar Flosasonar Flutt verður úrval sönglaga Sigurðar við texta Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar sem komið hafa út á plötunum „Hvar er tunglið?" (2006) og „Í nóttinni" (2014). Kristjana Stefánsdóttir syngur, Sigurður Flosason leikur á saxófón, Eyþór Gunnarsson á píanó, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur.

    kr.2000 – kr.3500
  • Japanskur andblær – vatnslitamyndir

    Hannesarholt veitingastofur 1.hæð

    María Loftsdóttir myndlistarkona færir Íslendingum japanskt landslag og andblæ með mjúkum vatnslitamyndum sínum en fyrir nokkrum árum sýndi hún Japönum íslenskt landslag skapað með vatnslitum. Sýningaropnun 21. jan. kl. 16. Sýningin stendur í mánuð.

  • Syngjum saman

    Hjóðberg Grundarstíg 10, Reykjavik, Reykjavík, Iceland

    Syngjum saman verður að þessu sinni í höndum Heimilisiðnaðarfélagsins sem [...]

    kr.1000
  • Sagnakvöld með Einari Kárasyni

    Hljóðberg

    Einar Kárason rithöfundur og sagnamaður eys úr sagnabrunni sínum í Hljóðbergi, sögum um gaman og alvöru. Miðasala á midi.is

    kr.1500
  • Kvöldstund með Herdísi Egilsdóttur

    Hljóðberg

    Kvöldstund með Herdísi Egilsdóttur kennara og rithöfundi sem kenndi við skóla Ísaks Jónssonar í 45 ár. Miðar á midi.is Kvöldverður frá kl. 18.30 lax með sesamsojasmjöri, kartöflumús og fersku salati, verð kr.2900. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is

    kr.1500
  • Tónleikar – Gestur frá gamla landinu

    Hljóðberg

    Björg Brjánsdóttir flautuleikari og Tina Margareta Nilssen píanóleikari ásamt Stine Aarønes fiðluleikara og Brjáni Ingasyni fagottleikara flytja verk eftir Beethoven, Grieg, Brahms og Sjostakovitsj á notalegum tónleikum í Hljóðbergi laugardaginn 11. febrúar.

    kr.2000
  • Dúó tónleikar fyrir selló og píanó

    Hljóðberg

    Gunnar Kvaran og Domenico Codispoti leika saman á dúó-tónleikum fyrir selló og píanó verk eftir Brahms, Schumann, Rachmaninoff og Shostakovich. Þetta er í fyrsta sinn sem þessir tónlistarmenn leika saman opinberlega.

    kr.3000
Go to Top