Hleð Viðburðir

Frændsystkinin og dúóið Anna Gréta Sigurðardóttir og Sölvi Kolbeinsson leika frumsamda tónlist og útsetningar sem þau hafa unnið að síðustu mánuði. Tónlistin gæti flokkast sem melódískur djass undir þjóðlagaáhrifum þar sem spuninn er í fyrirrúmi. Anna og Sölvi hafa bæði hlotið titilinn „bjartasta vonin“ á íslensku tónlistarverðlaunum, Anna árið 2015 og Sölvi 2016. Prógrammið samanstendur af eigin tónsmíðum sem þau hafa unnið að bæði saman og í sitthvoru lagi. Anna og Sölvi voru valin fyrir hönd Íslands til að taka þátt í Young Nordic jazz Comets sem fór fram í Umeå, Svíþjóð þetta árið og fengu frábærar móttökur á meðal áhorfenda og fjölmiðla. Í sænska dagblaðinu ,,Folkbladet” var tónleikum þeirra lýst svona: ,,Fallegri tónlist er erfitt að finna. Tónlistin er undir þjóðlagaáhrifum, eins og má heyra á saxófónleik Sölva Kolbeinssonar. Hann er sem Paul Desmond við rætur Heklu. Anna Gréta Sigurðardóttir spilar á píanó svo tilfinningaþrungið og leitandi að helst minnir á Esbjörn Svensson. Hrein píanólýrík.” (Folkbladet, Umeå, 27/10 2016)