Hleð Viðburðir

Tímamót í lífinu fá okkur gjarnan til að breyta um takt, taka upp nýja siði og endurskoða lífsgöngu okkar. Kristborg Bóel Steindórsdóttir stendur á slíkum stað um þessar mundir, þar sem hún gaf nýverið út sína fyrstu bók Tvöhundruð sextíu og einn dagur. Bókina skrifaði hún á leið sinni til andlegrar og félagslegrar heilsu eftir hremmningar í einkalífi, skilnað og niðurbrot. Margir hafa orðið til þess að þakka Kristborgu Bóel opninberlega fyrir að opna umræðuna um erfiðleikana sem sem fólk upplifir í tengslum við skilnað.

Kristborg Bóel verður gestur Hannesarholts laugardaginn 25.ágúst kl.17:00, þar sem hún deilir með gestum hugrenningum sínum á þessum tímamótum. Kristborg Bóel les uppúr bók sinni, segir frá ferðalaginu til betri heilsu og horfir til framtíðar. Umræður og fyrirspurnir velkomnar.

Sætaframboð er takmarkað, þannig að vissara er að trggja sér miða fyrirfram. Aðgangseyrir er 2000 krónur og er miðasala á tix.is

Tilboð á kvöldverði í veitingastofum Hannesarholts fyrir gesti Kristborgar. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is

Upplýsingar

Dagsetn:
25/08/2018
Tími:
17:00 - 18:00
Viðburður Categories:
,

Staðsetning

Grundarstígur 10
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
Phone
5111904