Hleð Viðburðir

Þröstur fæddist á Seyðisfirði árið 1966 og ólst þar upp í stórum og samheldnum systkinahópi. Hann bjó í Reykjavík frá framhaldsskólaaldri þar til hann ásamt fjölskyldu sinni tók föggur sínar og flutti til Osló árið 2009.

Hann hefur verið ljósmyndaáhugamaður frá unga aldri en síðasta áratug hefur áhugamálið fengið nýtt líf. Það hefur þróast úr hreinni tækjadellu í áhuga á heildarferlinu, frá ljósmyndun og myndbyggingu til eftirvinnslu ásamt tilraunastarfsemi með óhefðbundnar aðferðum við framsetningu.

Þröstur er sérfræðingur í gagnanetstækni og netöryggi og hefur unnið sem ráðgjafi og lausnaarkitekt i tengslum við krítískan iðnað eftir að hann flutti til Noregs og annasamur hversdagur hefur valdið að lítill tími hefur verið fyrir áhugamálið.

En, sem þáttakandi í stórum alþjóðlegum verkefnum hafa vinnutengd ferðalög til margra landa og heimsálfa verið hluti af starfinu og þá hefur myndavélin verið tekin með sem blés lífi í áhugamálið eftir áratuga dvala.

Helsta áhugamál fjölskyldunnar eru ferðalög sem varð til að ferðafyrirtækið Obeo Travel var stofnað 2016, sem meðal annars selur ferðir til Afríku undir vörumerkinu Obeo Afríka.
Segja má að rekstur fjölskyldufyrirtækisins og áhugamálið ásamt vinnutengdum ferðum passi sem hönd í hanska og gefið tækifæri til ferðalaga og ljósmyndunnar.

Myndirnar á sýningunni eru teknar á ferðalögum um sunnanverða Afríku skipulagðar af Obeo Afríku.

Myndirnar eru prentaðar á hágæða ljósmyndapappír med „pigment“ bleki sem skal halda lit og skerpu í árhundruði. Myndirnar eru límdar á MDF plötu og húðaðar med Epoxy sem hefur í sér vörn fyrir útfjólubláu ljósi. Aðferðin kallar fram skerpu og liti, gefur myndunum fágað yfirbragð en á sama tíma ófullkomna áferð sem undirstrikar að um handverk er að ræða.

Upplýsingar

Dagsetn:
20/06/2023
Tími:
14:00 - 17:00
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map