Hleð Viðburðir

Aríur úr óperunni The Raven’s Kiss eftir Evan Fein og Þorvald Davíð Kristjánsson verða fluttar í beinni útsendingu frá Hljóðbergi á fésbókarsíðu Hannesarholti sunnudaginn 3. maí kl. 12:15. Óperan er sungin á ensku.

Hlutverkaskipan: ● Gísli – ungur sjómaður: Ólafur Freyr Birkisson ● Baldur – faðir hans: Egill Árni Pálsson ● Helena – aðkomukona: Hildur Evlalía Unnarsdóttir ● Gunnar – lögregluþjónn: Bergþór Pálsson ● Anna – dóttir hans: Berta Dröfn Ómarsdóttir ● Píanó: Sigurður Helgi Oddsson

The Raven’s kiss er ópera í tveimur þáttum eftir Evan Fein og Þorvald Davíð Kristjánsson. Evan samdi tónlistina en Þorvaldur skrifaði söguþráðinn og textann. Óperan er skrifuð fyrir 5 einsöngvara og litla hljómsveit, en á tónleikunum sér Siguður Helgi Oddsson píanóleikari um meðleikinn. Sagan gerist í litlu sjávarþorpi og er byggð á íslenskri þjóðsögu. Dularfull kona, framandi og fögur, kemur óvænt í þorpið. Við það breytist líf, hegðun og hugsun heimamanna.

Óperan var frumflutt 23. ágúst 2019 í Herðubreið á Seyðisfirði, við frábærar undirtektir heimamanna. Það varð uppselt og líka á aukasýninguna 24. ágúst.

Upplýsingar

Dagsetn:
03/05/2020
Tími:
12:00 - 12:30
Viðburður Categories:
,

Staðsetning

Grundarstígur 10
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
Phone
5111904