Hleð Viðburðir

Hannesarholt býður í vetur uppá sögstund fyrir börn á laugardögum kl.11, þar sem sjálfboðaliðar lesa uppúr bókum úr BÓKAHILLUNNI Á BAÐSTOFULOFTINU.

Allir velkomnir og frítt inn.

Lesefnið er ýmist fyrirfram ákveðið af þeim sem les þann daginn, eða að gestir fá að velja bók úr BÓKAHILLUNNI Á BAÐSTOFULOFTINU til að heyra lesið úr.

Áhugasamir sjálfboðaliðar vinsamlegast hafi samband við skrifstofu Hannesarholts í síma 511-1904 eða á netfangið Ragnheidur@hannesarholt.is