2025-12-06T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Í fyrsta sinn verður haldið bókakaffi í veitingastofunum okkar hér í Hannesarholti.

Halldóra K. Thoroddsen segir í óformlegu spjalli frá nýútkominni bók sinni Tvöfalt gler, sem hlaut Fjöruverðlaunin 2016, bókmenntaverðlaun kvenna,  í flokki skáldrita.

Viðburðurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis svo lengi sem húsrúm leyfir. Gestir geta keypt sér kaffi og dásamlegt meðlæti til að gæða sér á, á meðan á spjallinu stendur.

 

Upplýsingar

Skipuleggjandi

Go to Top