Hleð Viðburðir

Bókakaffi er óformlegur ókeypis viðburður í veitingastofum Hannesarholts, þar sem rithöfundur gefur stutta grein fyrir verkum sínum og gestum gefst tækifæri til að ræða við höfundinn. Gestum býðst að kaupa sér kaffi og meðlæti og neyta þess á meðan á bókaspjallinu stendur.

Steinunn segir frá bókinni RADDIR ÚR HÚSI LOFSKEYTAMANNSINS, en fyrir bókina hlaut hún Fjöruverðalaunin í upphafi þessa árs.

Í bókinni segir hún sögur loftskeytamannsins og fangar jafnframt íslenskan veruleika í fortíð, nútíð og framtíð.

Raddir úr húsi loftskeytamannsins

„Mig fór að gruna að kannski væru sögurnar mínar þeirrar náttúru að þögnin gæti ekki falið þær.“

Ungur maður ætlar að leita uppi ellefu hálfsystkin sem öll eru fædd á sama árinu, ástfælinn bóksali gengur aftur og fylgist með nýjum lesendum, ólíkar systur reka saman sjoppu í Þingholtunum á meðan óreglumenn krunka sig saman á nýju tilvistarsviði.

Einmana loftskeytamaður er í sambandi á öldum ljósvakans en skrifar skáldverk þess á milli. Hann fyllist tortryggni þegar aðrir rithöfundar eru á yfirskilvitlegan hátt á undan honum að koma út bókum hans. Með aðstoð vísindanna tekst honum að snúa vörn í sókn.

Steinunn G. Helgadóttir myndlistarkona hefur getið sér gott orð fyrir ljóðabækur sínar og var valin ein af Ten New Voices of Europe 2017.