Bókmenntaspjall – Elsku Drauma mín og Ósjálfrátt
12/01/2017 @ 20:00
| kr.1500Elsku Drauma mín er ævisaga, skrifuð af skáldkonu, en Ósjálfrátt er skáldsaga, byggð á ævi skáldkonu. Báðar spretta þessar bækur þó úr sama jarðveginum, nánast úr sama kviðnum ef það er satt að barn sé upphaflega eggið úr ömmu sinni. Í báðum sögunum bregður Draumu leynt og ljóst fyrir en með ólíkum hætti.
Hver er munurinn á því að skrifa ævisögu og skáldsögu? Þær Vigdís Grímsdóttir og Auður Jónsdóttir ræða reynslu sína af því að fanga sömu bráðina í net ólíkra forma, þann 12. janúar í Hannesarholti. Ef þau eru þá svo ólík, eftir allt saman. Þriðja skáldkonan, Kristín Ómarsdóttir, ætlar að leiða umræðurnar og yfirheyra þær eftir bestu getu – vonandi með dyggri aðstoð áhorfenda.
Veitingastofur opna kl. 18.30 fyrir þá sem vilja gera sér dagamun og taka kvöldið snemma. Í boði er ljúffengt fiskmeti úr eldhúsi Hannesarholts. Athugið að nauðsynlegt er að panta fyrir hádegi samdægurs á hannesarholt@hannesarholt.