2025-12-05T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Velkomin á BÓKVIT í Hannesarholti laugardaginn 13.desember 2025, þar sem höfundar segja frá bókum sínum, lesa uppúr þeim og selja þær jafnvel. Þessir rithöfundar kynna eftirtaldar bækur:

Rán Flygenring – Blaka
Katrín Jakobsdóttir (og Ragnar Jónasson) – Franski spítalinn
Bjarki Bjarnason – Myndarleg ljóð
Trausti Valsson – List og hönnun                                                                                                                                              Jógvan Ísaksen – Fimmti maðurinn
Þór Tuliníus – Sálnasafnarinn

Gengið inn frá Hljóðbergi. Aðgengi fyrir fatlaða. Ókeypis inn.
Veitingahúsið á efri hæðinni opið að viðburði loknum.
Hannesarholt hefur í gegnum tíðina sinnt bókmennt með ýmsum hætti og í vistarverum hússins er allnokkur bókakostur, sem gestum býðst að glugga í og njóta á meðan þeir dvelja í húsinu. Nú býður Hannesarholt rithöfundum að lesa uppúr bókum sínum á laugardögum kl.11.30-12.30 á eftirfarandi dagsetningum:
20.september, 18.október, 25.október, 8.nóvember, 15.nóvember 22.nóvember, 29.nóvember, 6.desember og 13.desember.

Upplýsingar

Staðsetning

Go to Top