2026-01-29T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir
Velkomin á BÓKVIT í Hannesarholti laugardaginn 25.október 2025, þar sem höfundar segja frá bókum sínum, lesa uppúr þeim og selja þær jafnvel. Þessir rithöfundar kynna eftirtaldar bækur:
Sigrún Alba Sigurðardóttir – Þegar mamma mín dó
Anton Helgi Jónsson – Ég hugsa mig – Nokkur ljóðaljóð og sagnir
Gunnar Theódór Eggertsson – Álfareiðin
Guðmundur Andri Thorsson – Dans jaðrakansins
Gengið inn frá Hljóðbergi. Aðgengi fyrir fatlaða. Ókeypis inn.

Veitingahúsið á efri hæðinni opið að viðburði loknum.
Hannesarholt hefur í gegnum tíðina sinnt bókmennt með ýmsum hætti og í vistarverum hússins er allnokkur bókakostur, sem gestum býðst að glugga í og njóta á meðan þeir dvelja í húsinu.
Nú býður Hannesarholt rithöfundum að lesa uppúr bókum sínum á laugardögum kl.11.30-12.30 á eftirfarandi dagsetningum: 20.september, 18.október, 25.október, 1.nóvember, 15.nóvember og 6.desember

Upplýsingar

  • Dagsetn: 25/10/2025
  • Tími:
    11:30 - 12:30
  • Viðburður Category:

Staðsetning

Go to Top