
Bríet, blómin & Hannes
24. janúar @ 14:00 - 15:00
Dagskráin „Bríet, blómin og Hannes“ var flutt í Hannesarholti – Hljóðbergi 27. til heiðurs Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindakonu, blaðamanni og ritstjóra Kvennablaðsins á afmælisdegi hennar og verður endurtekin 24. & 28. janúar. Fjallað verður um samstarf Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands og Bríetar, ólíka æsku þeirra og kjör og hvernig lífsþræðir þeirra spunnust saman, meðan bæði lifðu. Samstarf þeirra hafði mikil áhrif á þróun kvenréttinda hér á landi. Sá sögulegi sannleikur má ekki gleymast.
En hvaða blóm eru þetta ? – Það færðu að vita ef þú mætir í Hannesarholt 24. eða 28. janúar. Veitingahúsið er opið frá kl.11.30 og má njóta veitinga á undan viðburði.
Sýningin er samvinnuverkefni og er styrkt af Leikhúslistakonum 50 plús og Hannesarholti
Dagskráin er um eina klst. Miðasala á tix.is
Þáttakendur
Ásdís Skúladóttir leikstjóri, skrifaði handritið ásamt hópnum
Edda Þórarinsdóttir leikkona
Helga E. Jónsdóttir leikkona
Þórey Sigþórsdóttir leikkona
Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari



