Hleð Viðburðir

Exotísk tónlist frá Brasilínu, Argentínu, Frakklandi og öðrum ímynduðum lendum leikin af engum öðrum en Hilmari Jenssyni á gítar, Olivier Manoury á bandoneon og Nicolasi Moreaux á kontrabassa.

Á tónleikum EXOTIC MUSIC heyrum við verk sem flest eru sjaldheyrð á djasstónleikum, en um leið er djassinn tónmálið sem tónlistarmennirnir þrír nota til að spila af fingrum fram.
Verkin eftir Olivier eru flest samin fyrir kvikmyndir en Nicolas kemur hér einnig fram sem tónskáld. Hilmar og Nicolas eru tengdari djassheiminum en Olivier frekar tangó og latnesk-amerískri tónlist. Þeir bjóða upp á ævintýraferð til ímyndaðra tónlistarlanda, stíllinn er ekki fyrirfram ákveðinn og stemning augnabliksins ræður ferðinni.

Olivier Manoury, bandóneonleikari (f. 1953) er löngu kunnur hér á landi og í Evrópu sem bandóneonleikari, tónskáld og útsetjari. Hann hefur samið tónlist fyrir kvikmyndir, leikhús og danssýningar, spilað inn á fjölda geisladiska auk þess að leika á tónleikum og tónlistarhátíðum í Evrópu, Suður-Ameríku og Asíu. Olivier hefur spilað á Íslandi í meira en 30 ár m.a. með hljómsveitinni Le Grand Tango ásamt Eddu Erlendsdóttur, Auði Hafsteinsdóttur, Geirþrúði Ásu Guðjónsdóttur, Þórunni Ósk Marínósdóttur, Bryndísi Höllu Gylfadóttur og Richard Korn. Hann hefur einnig spilað með með Agli Ólafssyni, Tómasi R. Einarssyni, Kjartani Valdemarssyni og Kordo strengjakvartettinum.

Hilmar Jensson, gítar (f 1966) er einn fremsti djassgítarleikari Íslands. Hann stundaði nám við FIH tónlistarskólann á Íslandi frá 1982 og síðan frá 1991 í Berklee College of Music í Boston. Hann hefur komið fram og hljóðritað í fjölmörgum útsetningum og upptökum á yfir 50 hljómplötum. Hann hefur spilað í 35 löndum með tríói sínu “TYFT”, AlasNoAxis frá Jim Black, MadLove frá Trevor Dunn, Mogil, Outhouse, BMX og fleiri. Hann er einn af stofnendum Kitchen Motors, íslenskrar plötu-útgáfu, hugveitu og listasamtaka.

Nicolas Moreau, kontrabassaleikari, (f 1973) hefur verið eftirsóttur bassaleikari í París í mörg ár. Góð þekking hans á djassmenningu og verkum er ástæðan fyrir því að hann er valinn til þess spila með hinum ýmsu hljómsveitum og einleikurum. (Tigran Hamasyan, Jeff Ballard, Chris Cheek, Jorge Rossy, Baptiste Trotignon, Bill McHenry, Jeremy Udden. Robert Stillman, Dan Tepfer, Pedro Martins). Nicolas er einnig tónskáld og hefur gefið út þrjár plötur með hljómsveit sinni í París. Hann býr nú og starfar á Íslandi.

Upplýsingar

Dagsetn:
01/09/2023
Tími:
20:00 - 21:00
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map