Farfuglatónleikar – Rakel Björt Helgadóttir
29/12/2016 @ 20:00
| kr.2500Rakel Björt Helgadóttir nemur hornleik í Berlín. Hún hóf hornnám 9 ára gömul við Tónlistarskólann á Seltjarnarnesi þar sem kennari hennar var lengstum Anna Sigurbjörnsdóttir. Árið 2007 hóf hún nám við Tónlistarskólann í Reykjavík þaðan sem hún lauk Burtfararprófi undir handleiðslu Josephs Ognibene vorið 2012. Þaðan lá leið hennar til Þýskalands þar sem hún hóf nám við Folkwang Universität der Künste í Essen. Frá vormánuðum 2014 hefur Rakel stundað nám við Universität der Künste Berlin en þar hefur hún notið handleiðslu kennara á borð við Ozan Çakar, Přemysl Vojta, Prof. Ch-Fr. Dallmann og Sebastian Posch. Rakel hefur auk þess sótt fjölda Masterklassa hjá kennurum á borð við Frøydis Ree Wekre, Radovan Vlatkovic, Prof. Thomas Hauschild o.f.l. Hún hefur verið aukamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands síðan vorið 2012. Auk þess hefur hún leikið sem aukamaður með hljómsveitum á borð við Deutsche Sinfonieorchester Berlin, Kammerphilharmonie Wernigerode og Berliner Sinfonietta. Rakel er meðlimur í c/o chamber orchestra.
Efnisskrá:
Ludwig van Beethoven: Horn Sonata í F-dúr op. 17
Klement Slavický: Capricci per corno e pianoforte Robert Schumann: Fantasiestücke, Op. 73
Meðleikari hennar á þessum klukkustundarlöngu tónleikum er Anna Guðný Guðmundsdóttir.
Tónleikar Farfugla í Hannesarholti eru haldnir með stuðningi frá Reykjavíkurborg.