Farfuglatónleikar – Sólveig Steinþórsdóttir
30/12/2016 @ 17:00
| kr.2500Sólveig Steinþórsdóttir stundar fiðlunám við listaháskólann í Berlín. Hún hóf fiðlunám þriggja ára gömul hjá Lilju Hjaltadóttur við Allegro Suzukitónlistarskólann. Á árunum 2008-2013 var hún nemandi Guðnýjar Guðmundsdóttur við Tónlistarskólann í Reykjavík. Frá haustinu 2014 hefur hún stundað nám við Listaháskólann í Berlín, Universität der Künste Berlin, undir handleiðslu Eriku Geldsetzer. Sólveig hefur sótt fjölda meistaranámskeiða hér heima og erlendis, m.a. í Þýskalandi, Sviss, Bandaríkjunum, Hollandi og á Ítalíu. Hún hefur spilað fyrir marga virta fiðluleikara, þar á meðal Christian Tetzlaff, Ulf Hoelscher, Roland Vamos og Philippe Graffin. Sólveig hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands á jólatónleikum árin 2009 og 2011 og á tónleikunum Ungir einleikarar árið 2013. Ennfremur hefur hún komið fram sem einleikari með hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík árið 2010, á hátíðartónleikum á Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar í Hörpu árið 2013, á lokatónleikum á Internationale Sommerakademie Cervo á Ítalíu árið 2015 og 2016 og með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins árið 2015. Í mars 2016 sótti Sólveig námskeið í Neustadt an der Weinstraße hjá Sebastian Schmidt og tók þar þátt í fiðlukeppni á vegum námskeiðsins og fékk þar 2. verðlaun. Í ágúst 2016 kom Sólveig fram á opnunartónleikum Tónlistarhátíðar unga fólksins þar sem leikin voru verk fyrir fiðlu og selló, í kjölfar tónleikakeppni hátíðarinnar.
Anna Guðný Guðmundsdóttir spilar með á flygilinn. Tónleikarnir standa yfir í u.þ.b. klukkustund.
Efnisskrá:
L. van Beethoven: Sónata fyrir fiðlu og píanó nr. 8 í G-dúr, op. 30
E. Ysaye: Sónata fyrir einleiksfiðlu op. 27 nr. 6 S.
Prokofiev: Sónata fyrir fiðlu og píanó nr. 2 í D-dúr, op. 94a
Tónleikar Farfugla í Hannesarholti eru haldnir með stuðningi frá Reykjavíkurborg.