This event has passed.
Félag íslenskra fræða – Endurfædd orð og önnur dauð
24/02/2016 @ 20:00
Sölvi Sveinsson: Endurfædd orð og önnur dauð
Í erindinu verður fjallað um orðaforða fornmálsins í tengslum við bókina Endurfædd orð og önnur dauð. Hvað ræður því að sum ágæt orð deyja, orð sem prýðilega mundu sóma sér í nútímamáli. Sum orð hafa endurfæðst í nýrri merkingu. Hvað ræður því? Segir það eitthvað að um mörg orð eru örfá dæmi í Ordbog over det norröne prosasprog og um mörg orð aðeins eitt dæmi? Eitthvað fleira hangir á spýtunni.

Sölvi er cand. mag. í sagnfræði og hefur lengst af starfað við kennslu og skólastjórnun, ásamt ritstörfum.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Gestum gefst kostur á að snæða léttan kvöldverð í veitingastofum Hannesarholts á fyrstu hæð hússin. Kvöldverðurinn er í formi smáréttarplatta sem þarf að panta fyrirfram með borðapöntun í síma 511 1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is í síðasta lagi kl 16.00 daginn fyrir. Nánari upplýsingar hér.