Hleð Viðburðir

Af hverju eru fjármagnshöft? Hvað þýða þau fyrir heimili og fyrirtæki? Hvernig er hægt að losna undan þeim? Hvað er framundan?

Félag frjálslyndra jafnaðarmanna boðar til opins fundar þriðjudaginn 11. september kl. 20:00 í Hannesarholti við Grundarstíg til að ræða fjármagnshöftin, afleiðingar þeirra og leiðir til afléttingar.

Frummælendur verða Ásdís Kristjánsdóttir hagfræðingur Samtaka atvinnulífsins og Vilhjálmur Þorsteinsson frumkvöðull og yfirféhirðir FFJ. Að loknum framsöguerindum verða umræður og spjall.

Af hverju voru höftin sett á í nóvember 2008? Hvernig virka þau? Af hverju er ekki búið að aflétta þeim? Nú getur fólk verslað að vild og notað krítarkort erlendis, hvað er þá vandamálið? Hvernig birtast höftin almenningi og fyrirtækjum, til dæmis sprotafyrirtækjum? Hver er skaðinn af þeim til lengri og skemmri tíma? Hvaða leiðir eru færar til að losna undan þeim? Er unnt að fara svo kallaða “gjaldþrotaleið”? Hver er þáttur “hrægammasjóða” í framvindunni? Hvernig tengist ESB- og evruaðild afléttingu haftanna?

Hvað er framundan í þessum málum í vetur? Hvaða hagsmunir eru undir og hvernig tengjast þeir mismunandi leiðum í stöðunni?

Búast má við að ofangreindar spurningar og fleiri verði til umræðu á fundinum.

Fundarstjóri verður Dagbjört Hákonardóttir lögfræðingur og varaformaður FFJ.

Allir velkomnir – takið með ykkur gesti!

Kaffigjald er 500 kr.

Upplýsingar

Dagsetn:
09/09/2014
Tími:
20:00 - 22:00
Verð:
ISK500
Viðburður Category:

Skipuleggjandi

Haukur Hólmsteinsson

Staðsetning

Hljóðberg