Hleð Viðburðir
Útgáfutónleikar FLASHBACK
Duo Ultima skipa:
Guido Bäumer á saxófón og Aladár Rácz á píanó.
Kynnir á tónleikunum er Mark Zimmer.

Yfirskrift tónleikanna er
FLASHBACK- Horft til fortíðar, evrópsk tónlist frá miðri síðustu öld. Verk eftir Edison Denisov, Paul Hindemith, Hans Gál, Werner Heider og Erwin Schulhoff.
Í tilefni þess að út er kominn fyrsti geisladiskur dúettsins, undir titlinum FLASHBACK heldur dúettinn sérstaka útgáfutónleika í Hannesarholti þann 4. mars kl. 20.00.
Diskurinn er gefinn út af útgáfufyrirtækinu Odradek-Records og er síðan von á fleiri diskum frá sama fyrirtæki með dúettinum. Almennt miðaverð á tónleikana er 2000 krónur, en 1000 krónur fyrir eldri borgara og öryrkja.

Upplýsingar

Dagsetn:
04/03/2016
Tími:
20:00
Verð:
kr.2000
Viðburður Category:

Skipuleggjandi

Duo Ultima

Staðsetning

Hljóðberg