2026-02-27T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir
Fríða Katrín Bessadóttir opnar málverkasýningu sína Í FAÐMI MARKA í Hannesarholti föstudaginnn 27.febrúar kl.16-18. Sýningin er sölusýning og stendur til 18.mars.
Í Faðmi Marka snýst um tíma. Þann tíma sem við verjum í náttúrunni, í faðmi, í nándinni. Tímann sem við verjum í hverja einustu stroku, hvert einasta blóm, hverja einustu stund. Fríða Katrín fetar nýja braut eftir áreiti hversdagsins og hægir á sér í formi myndverka. Hún blandar impressjónisma og púnktisma í ný verk sem einblína á tungumálið og litríka náttúru þar sem hún tvinnar saman raunveruleikanum við ímyndunaraflið. Hún opnar sig fyrir líkamlega og hugræna ferlinu sem og núvitundinni sem liggur á bakvið hverja einustu stroku. Með olíuverkum fær Fríða Katrín áhorfendur til þess að staldra við á mörkum líkama og umhverfis og dvelja þar um stund.
Fríða Katrín Bessadóttir er þverfagleg listakona sem einbeitir sér að gjörningalistinni og tengslum hennar við myndlist. Verk hennar kanna flókið samspil veruleika og skáldskapar, oft byggt á eigin reynslu og reynslu annarra. Með því að endurhugsa og endurskapa þessar frásagnir skorar hún á skynjun áhorfandans, stundum blekkir hún áhorfendur eða skilur eftir vísvitandi eyður sem bjóða þeim að klára söguna. Með BA-gráðu í myndlist og MA-gráðu í sviðslistum hefur hún þróað fjölþætta nálgun í gegnum víðtæka sjálfstæða iðkun. Þekking hennar á bæði myndlist og sviðslist er talin gagnleg fyrir fjölbreytt samstarf og verkefni, svo sem að skapa verk fyrir Listahátíð barna á Reykjanesi, hanna og smíða listaverk fyrir Reykjavíkurborg (Galop Náttúrunnar), sýna verk í samsýningum bæði í Danmörku og Skotlandi, flytja verk fyrir ýmsa listamenn á Íslandi, Spáni og Rúmeníu. Auk þess að vera hluti af galleríinu KANNSKI.
Enska:
Fríða Katrín Bessadóttir opens her exhibit THE EMBRACE OF BOUNDARIES in Hannesarholt on Friday February 27th at 4-6 pm.
The show, the Embrace of Boundaries is about time. The time we spend in nature, in someone’s embrace, during intimacy. The time we spend making every single stroke, every single flower, every single moment. Fríða Katrín forges a new path after the stimuli of everyday life and slows down in the form of paintings. She mixes impressionism and pointillism into new works that focus on language and colorful nature as she intertwines reality with imagination. She opens herself to the physical and mental process as well as the awareness that lies behind every single stroke.
With her oil paintings, Fríða Katrín makes viewers pause at the boundary between body and environment and dwell there for a while.
Fríða Katrín Bessadóttir focuses on performances and their connections to Visual Arts. Her works deal extensively with the interplay between reality and fiction, drawing upon both her personal experiences and those of others, and reimagining them to either deceive the audience or prompt them to fill in the blanks. Having a background in both Fine Arts (BA)  and Performing Arts (MA) , she has honed her skills through extensive independent work. She usually, as a performer, writes scripts, acts, directs, makes costumes and builds stages.
Fríða Katrín has participated in various group exhibitions and projects such as creating a work for the Reykjanes Children’s Arts Festival, designing and constructing an artwork for the City of Reykjavík (the troll Búri), showing in group exhibitions in both Denmark and Scotland, performed for various artists in Iceland, and Spain. As well as being a part of KANNSKI gallery.
All the pieces are for sale. The exhibit is open until March 18th.

Upplýsingar

Staðsetning

Go to Top