Hleð Viðburðir

Þriðja gönguferðin af fjórum sem fyrirhugaðar eru á vegum Hannesarholts þetta vorið með Guðjóni Friðrikssyni, sagnfræðingi. Að þessu sinni verður Laufásvegur og nágrenni fyrir valinu. Ferðirnar byrja í Hannesarholti á Grundarstíg 10 kl. 11:00 og enda í Hljóðbergi við Skálholtsstíg, þar sem sýnd verður stutt heimildamynd um Hannes Hafstein og uppvaxtarár borgarinnar. Auk þess er boðið upp á skoðunarferð um húsið fyrir þá sem það vilja. Gönguferðin tekur um eina og hálfa klukkustund. Fáir eru betur að sér en Guðjón um húsin og fólkið í gömlu Reykjavík og víst er að menn fara fróðari af hans fundi. Hann skrifaði m.a ævisögu Hannesar Hafstein Ég elska þig stormur sem út kom árið 2005.

Veitingahúsið Borðstofan á 1.hæð hússins verður opin og er þar ýmislegt ljúfmeti í boði, bæði sætt og ósætt. Við bendum á að kaupa má miða á midi.is en einnig má panta miða með því að hringja í s. 511 1904. Takmarkaður fjöldi.

Næsta fyrirhugaða ferð verður sunnudagurinn 15.júní á sama tíma og verður þá gengið umhverfis Tjörnina.

Upplýsingar

Dagsetn:
18/05/2014
Tími:
11:00 - 12:30
Verð:
ISK2000
Viðburður Category:
Vefsíða:
http://midi.is/event/1/8170

Skipuleggjandi

Hannesarholt

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map