2025-12-06T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Næstkomandi sunnudag 23. mars verður farið í fyrstu gönguferðina af fjórum sem fyrirhugaðar eru á vegum Hannesarholts með Guðjóni Friðrikssyni, sagnfræðingi. Í þessari fyrstu ferð verður farið um Þingholt og nágrenni. Ferðirnar byrja í Hannesarholti á Grundarstíg 10 kl. 11:00 og enda í Hljóðbergi við Skálholtsstíg, þar sem sýnd verður stutt heimildamynd um Hannes Hafstein og uppvaxtarár borgarinnar.  Auk þess  er boðið upp á skoðunarferð um húsið .  Gönguferðin tekur u.þ.b klukkustund. Kaffi á könnunni að gönguferð lokinni. Auk þess er veitingasala opin í Borðstofunni á 1.hæð hússins. Fáir eru betur að sér en Guðjón um húsin og fólkið í gömlu Reykjavík og víst er að menn fara fróðari af hans fundi. Hann skrifaði m.a ævisögu Hannesar Hafstein Ég elska þig stormur sem út kom árið 2005.

Sunnudagurinn 23.mars kl.11:  Þingholtin

Sunnudagurinn 27.apríl kl.11:   Skólavörðustígur og Skólavörðuholt.

Sunnudagurinn 18.maí  kl.11:   Laufásvegur og nágrenni

Sunnudagurinn 15.júní  kl.11:   Umhverfis Tjörnina

 

 

 

 

Upplýsingar

Skipuleggjandi

Staðsetning

Go to Top