
This event has passed.

Heimil Heimsmarkmiðanna: Skólamenning
14. maí @ 17:30 - 19:00
Heimili Heimsmarkmiðanna: Skólamenning
Fjórða heimsmarkmiðið lýtur að menntun og leggur áherslu á að menntun sé öllum aðgengileg. Við beinum sjónum að fyrirbæri sem kallast skólamenning, skólaandi – eða á ensku school climate. Eitt er að hafa aðgang að menntun, annað að geta nýtt sér hana. Til að geta náð árangri í námi þarf nemendum að líða vel og þeir að upplifa sig örugg og virt. Við viljum skoða hvað einkennir nærandi skólamenningu, hvað er hægt að gera til að rækta upp góða skólamenningu og hvaða áskoranir fólk sér í íslensku skólalífi um þessar mundir í þessu efni.
Meðal viðmælenda á þessum ellefta umræðufundi Heimilis Heimsmarkmiðanna eru Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari í FG, Hjörvaar Ingi Haraldsson, kennari í FB og Berglind Helga Sigurþórsdóttir, námsráðgjafi í Versló. Ragnheiður Jóna Jónsdóttir stýrir fundinum.
Gestir eru velkomnir í Hannesarholt til að taka þátt í samræðum. Streymt verður frá fundnum og áheyrendum býðst að senda inn fyrirspurnir til hópsins.