
Heimili heimsmarkmiðanna: Listir, íþróttir og tómstundir sem forvörn og endurhæfing
11. mars @ 17:30 - 19:00
Börn og ungmenni sem hafa leitast út á hála braut, hvort sem það er í átt að fíkniefnum, öfgahugmyndafræði eða andfélagslegri hegðun, þurfa oft meira en hefðbundna meðferð.
Rannsóknir og reynsla sýna að list, íþróttir og tómstundir geta verið lykillinn, ekki einungis sem forvörn heldur sem öflug endurhæfingarleið. Þegar ungmenni læra að skapa, hreyfa sig og þroskast í öruggu og uppbyggilegu umhverfi eflast sjálfsmynd þeirra og sjálfsvirðing. Breyting á sér stað, þegar ungmenni byrja að trúa á eigið gildi, eigin möguleika og byrja að endurbyggja brotna sjálfsmynd.
Hvernig skapar listin rými til að vinna úr erfiðleikum? Hvernig byggja íþróttirnar upp þrautseigju og lífsfærni? Hvernig geta skipulagðar tómstundir verið sá vettvangur þar sem börn finna sig?
Á fundinum ræðum við hvernig við getum saman, fagfólk, foreldrar og samfélagið í heild, stutt börn og ungmenni til að finna styrk sinn og taka þátt í samfélaginu á jákvæðan hátt.
Í pallborði sitja Björn Már Sigurbjörnsson Brink frá Vopnabúrinu, Unnur Óttarsdóttir frá Listmeðferð Unnar, Jakob Frímann Þorsteinsson lektor við Menntavísindasvið, og Margrét Kristín Sigurðardóttir listamaður og kennari.
Guðrún Sóley Gestsdóttir stýrir fundinum.
Öll velkomin í Hannesarholt. Fundurinn verður einnig í streymi.
Fundurinn er styrktur af Hannesarholti og Reykjavíkurborg.
