Hleð Viðburðir

Grunnrannsóknir þar sem CRISPR-erfðabreytingatæknin kemur við sögu hafa vakið mikla athygli á liðnum árum. Það eru möguleikar tækninnar sjálfrar sem vakið hafa mest umtal og hafa fjölmargir kallað eftir samtali milli vísindamanna, siðfræðinga og samfélagsins í heild sinni um þessi mál. Á þessu öðru heimspekispjalli vetrarins í Hannesarholti munu Guðrún Valdimarsdóttir, lektor við læknadeild Háskóla Íslands, og Henry Alexander Henrysson, aðjunkt við Sagnfræði- og heimspekideild og sérfræðingur við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands eiga samræðu um CRISPR og svara spurningum úr sal.

Ókeypis er á viðburðinn.

Opið verður í Veitingastofum Hannesarholts fyrir viðburðinn.

Upplýsingar

Dagsetn:
21/11/2017
Tími:
20:00 - 22:00
Verð:
Free
Vefsíða:
www.facebook.com/Hannesarholt/posts/1951027351837394

Skipuleggjandi

Henry Alexander Henrysson

Staðsetning

Hljóðberg
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map