Hleð Viðburðir

Dúó Stemma eru Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari.
Saman hafa þau leikið í rúmlega 10 ár og frumflutt mörg verk sem skrifuð hafa verið fyrir þau og haldið fjölmarga tónleika.

Auk þess hefur Dúó Stemma sett saman efnisskrá fyrir börn sem þau kalla “Töfraveröld tóna og hljóða” og spilað fyrir börn í leikskólum og grunnskólum. Haustið 2010 tóku þau þátt í vestnorræna verkefninu “Listaleypurinn.”
og spiluðu 20 tónleika fyrir mörg hundruð börn í Færeyjum og Grænlandi.

Dúó Stemma hlaut viðurkenninguna “Vorvindar” frá IBBY samtökunum árið 2008 fyrir framlag þeirra til barnamenningar á Íslandi.

Herdís Anna Jónsdóttir lauk prófum frá Tónlistarskóla Akureyrar 1983, Tónlistarskólanum í Reykjavík 1986 og Hochschule fur Musik und Darstellende Kunst Stuttgart 1992. Hún er fastráðinn víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands síðan 1995 og hefur spilað með fjölmörgum kammerhópum á Íslandi m.a Kammersveit Reykjavíkur og Dísunum.

Steef van Oosterhout lauk einleikaraprófi frá Sweelinck Conservatorium Amsterdam 1987. Hann starfaði í Hollandi með ýmsum kammerhljómsveitum m.a. Nederlands blazersensemble og lék með sinfóníuhljómsveitum þ.á.m. Consertgebouwhljómsveitinni í Amsterdam. 1991 var hann ráðin sem slagverks- og pákuleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hefur leikið með ýmsum kammerhópum þ.á.m. Caput og slagverkshópnum Bendu

Upplýsingar

Dagsetn:
01/11/2014
Tími:
13:00 - 13:45
Verð:
ISK1.000

Staðsetning

Hljóðberg