Hleð Viðburðir

„Himininn yfir jöklinum“

Á sýningunni „Himininn yfir jöklinum“ sýnir Margrét E. Laxness ný verk unnin í akrýl á striga. Í verkunum birtist landslag, órætt en þó kunnuglegt, við könnumst við víðátturnar, sandana og jökulinn en getum þó ekki nefnt staðinn, yfir sveima skýin í litagleði og krafti og tjá andrúmsloft, hugarástand – ógn eða kyrrð, óveður eða veðurblíðu. Leikurinn með liti og kröftugar pensilstrokur myndar andstæður og tjáir hugarástand listamannsins og tilfinningar andspænis náttúrunni; einskonar náttúruljóð sem þenur mörk hins raunsæja og þekkta.

Margrét E. Laxness nam myndlist við Myndlista- og Handíðaskóla Íslands, í Textíldeild og Nýlistadeild, stundaði og framhaldsnám í málun við Accademia di Belle Arte í Róm. Margrét hefur haldið einkasýningar og einnig tekið þátt í samsýningum á Íslandi og á Ítalíu þar sem að hún hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir verk sín á samsýningu 2023 á vegum Art Space Milano í HubArt Gallery í Mílanó.

Upplýsingar

Dagsetn:
14/10/2023
Tími:
14:00 - 17:00
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map