Hleð Viðburðir

Þórunn Elísabet myndlistarkona opnar í Hannesarholti sýningu sem hún nefnir „Himneskt er að lifa“ miðvikudaginn 14.september kl.16-18.
„Sýningin er hugsuð útfrá Hannesi Hafstein, húsinu og sögunni. Bæði sögu Hannesar og fjölskyldu og þeirra sem komu á eftir í húsið. Ómur af lífi og tilfinningum. Texti Hannesar, lín og klæði alls staðar að. Fyrir utan dásamlega orðsnilld Hannesar og nýyrðasmíði var hann opinn fyrir sorginni sinni. Jafningi allra, jafnt barna, kvenna og kóngafólks,” segir Þórunn.

Sýningin er opin alla daga sem Hannesarholti er opið: alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11:30-16 og stendur út árið.

Allir velkomnir.

Upplýsingar

Dagsetn:
14/09/2022
Tími:
16:00 - 17:00
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map