Hulda – Hver á sér fegra föðurland?
28/06/2018 @ 20:00
| kr.3000Hulda-Hver á sér fegra föðurland
Tónlistardagskrá í tali og tónum um líf skáldkonunnar Huldu
Helga Kvam, píanó og Þórhildur Örvarsdóttir, söngur
Unnur Benediktsdóttir Bjarklind var fæddist þann 6. ágúst 1881 og lést 10. apríl 1946. Hún skrifaði ljóð og prósa undir skáldanafninu Hulda. Eitt þekktasta ljóð hennar var ættjarðarljóðið Hver á sér fegra föðurland? úr ljóðaflokknum Söngvar helgaðir þjóðhátíðardegi Íslands 17. júní 1944, samið í tilefni af lýðveldisstofnuninni 1944 og var annað tveggja ljóða sem vann samkeppni um hátíðarljóð.
Helga Kvam og Þórhildur Örvarsdóttir hafa í nokkur ár starfað saman sem dúett (píanó/söngur) og haldið saman marga þematengda tónleika þar sem efnistökin eru oftar en ekki ákveðin ljóðskáld/tónskáld bæði úr klassískum grunni og heimi dægurtónlistar. Á þessum tónleikum verða flutt lög íslenskra tónskálda við texta Huldu ásamt frumflutningi á tónlist eftir Daníel Þorsteinsson sem hann sem hann samdi sérstaklega fyrir Helgu og Þórhildi fyrir þessa dagskrá. Tónlistinni er fléttað saman við frásagnir af lífi Huldu og verkum hennar.
Tónleikarnir eru styrktir af Sóknaráætlun Norðurlands eystra, KEA, Dagskrá Fullveldishátíðar og Listamannalaunum og unnir í samstarfi við Menningarmiðstöð Þingeyinga og Minjasafnið á Akureyri.
Aðgangseyrir á tónleikana er 3000 krónur, eldri borgarar og öryrkjar 2000 krónur, ókeypis inn fyrir 12 ára og yngri.