Hleð Viðburðir

Herferðin #Hún splæsir hefst formlega á Íslandi í Hannesarholti fimmtudaginn 15. mars næstkomandi. Herferðin er af norskri fyrirmynd www.hunspanderer.com en hefur teygt arma sína til Svíþjóðar, Bretlands, Kanada, Ástralíu, Bandaríkjanna #ShesGotThis og nú til Íslands #Hún splæsir.

Markmiðið er að halda uppi uppbyggilegri umræðu um hvaða ómeðvituðu kynamismunun við verðum vör við í daglegu lífi og þau neikvæðu áhrif sem slík mismunun hefur á samfélagið í heild sinni.

#Hún splæsir hvetur konur til þess að splæsa á t.d. vini sína, fjölskyldumeðlimi eða samstarfsfélaga á fimmtudaginn næstkomandi og bjóða til samræðna um hvernig við getum öll tekið þátt í að minnka kynbundið misrétti.

Opið er í veitingastofum Hannesarholts til kl.22, gleðistund (happy hour) frá kl.17-19 og lifandi tónlist frá kl.18.30-20.