Í hennar sporum á konudaginn – Svanlaug Jóhannsdóttir
18/02/2018 @ 16:00
| kr.2000Skór eru svo sérstakir. Þeir eru alls konar í laginu, alls konar á litinn og fjölbreytilegir eftir tísku. Það skipti máli að eiga nesti og nýja skó þegar að ævintýrin hófust og enn hefjast mörg ævintýri á nýju pari. Fyrsta ballið, útskriftin, brúðkaupið. Skór sem
glöddu, skór sem mörkuðu tímamót og skór sem tengdust ástarsorg. Konan sem eignaðist bara eitt par á ævinni og hin sem átti tvö hundruð og vildi fleiri. Skór og konur…eilíf ástarsaga.
Söngkonan Svanlaug Jóhannsdóttir hefur leitað uppi skópör sem eiga sér sögu. Saga kvennanna og skónna, rómantíkin, gleðin og átökin, er sögð með sögum og söngvum, tónist úr öllum áttum.
Sýningin tekur tæplega klukkustund í flutningi og í henni kemur fram ásamt Svanlaugu, Einar Bjartur Egilsson, píanóleikari. Konudagstilboð á vöfflum og kaffi á undan sýningunni á kr.1000.