JAZZHÁTÍÐ – SIGURÐUR FLOSASON OG LARS JANSSON
06/09/2018 @ 19:30 - 22:30
Hannearholt hýsir tónleika Jazzhátíðar í Reykjavík fimmtudaginn 6.september með Sigurði Flosasyni altsaxófónleikara og sænska píanóleikaranum Lars Jansson, sem hafa þekkst í nokkur ár og spilað talsvert saman. Á síðasta ári hljóðritaði Sigurður plötuna „Green Moss Black Sand“ með trío Lars í Gautaborg. Sú plata hefur fengið frábæra dóma og gríðarlega góðar viðtökur á Spotify þar sem um 200.000 manns hafa streymt lögum af plötunni.
Nú leggja Lars og Sigurður upp með dúo tónleika þar sem áhersla verður á tónsmíðar þeirra beggja en ekki óhugsandi að vel valdir sígildir og sígrænir ópusar fylgi með. Hinn frábæri Steinway flygill, nánd og hljómburður Hannesarholts munu ramma inn eftirminnilega fund þessara tveggja listamanna.