Jazzveisla Kristjönu Stefáns
18/03/2016 @ 18:00
| kr.13900Jazz – veisla fyrir öll vit
Föstudagsköldið 18.mars tekur Jazztríó Kristjönu Stefánsdóttur á móti gestum í Hannesarholti.
Boðið verður uppá þriggja rétta matseðil og mun tríóið leika valda jazz standarda og spjalla um matinn og tónlistina á persónulegum nótum. Jazzaðri málsverð er ekki hægt að hugsa sér:
Fordrykkur: Manhattan hanastél ásamt munnbitum úr eldhúsinu
Aðalréttur: New Orleans Gumbo Sjávarréttarsúpa
Eftirréttur: Pekanhnetubaka með ís
Tríó Kristjönu Stefáns skipa: Kristjana Stefáns söngur, Kjartan Valdemarsson píanó, Gunnar Hrafnsson kontrabassi.
Gestafjöldi er takmarkaður og miðar eru einungis seldir í forsölu.