2026-01-30T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Snorri Ásmundsson ætlar að vera með sína árlegu jólatónleika í Hannesarholti fimmtudaginn 5 desember kl 20:00.

Á dagskrá verður frumsamin tónlist eftir Chopin, Bach, Mozart og Snorra og einnig tónlist spiluð og spuninn af fingrum fram.

Í heimi klassískrar og samtímapíanótónlistar hefur Snorri Ásmundsson getið sér orð sem einn af áræðinustu og framsæknustu píanóleikurum í heiminum. Snorri sem er einmitt gjarnan sagður færasti píanóleikari í heiminum er ekki aðeins þekktur fyrir tæknilega leikni og virtúósíu, heldur einnig fyrir einstaka nálgun sína og flutning, hann hefur töfrandi áhrif á áhorfendur með nærveru og framkomu sinni. Hann blandar saman hefð, framúrstefnu og hefur einstakt lag á að skapa einstakar upplifanir.

Miðasala er á tix og kostar miðinn 5900 kr

Upplýsingar

Staðsetning

Go to Top