This event has passed.

Kristín Pálmadóttir – leiðsögn um sýninguna FERÐ Á FJALLIÐ
26. apríl @ 14:00 - 15:00
Kristín Pálmadóttir býður leiðsögn um myndlistarsýningu sína í Hannnesarholti laugardaginn 26.apríl kl.14-15. Á sýningunni má finna verk unnin bæði í grafík og olíu og jafnvel er aðferðum blandað saman í sama verki. Umfjöllun um sýningu Kristínar má finna í Morgunblaðinu á Páskadag, á bls.22-23.
Flest verka á sýningu Kristínar eru tengd þeirri hugsun að stefna á toppinn, óviss hvort því takmarki verði náð, en upp er ferðinni heitið. Þó að ekki verði endilega komist á hærstu tinda er ferðin full af margbreytileika náttúrunnar, landinu við fætur okkar.
Þegar Kristín útskrifaðist frá Grafíkdeild MHÍ höfðaði það mest til hennar að vinna í ætingu. Þar fann hún samsvörun í þeirri tækni og yfirborði landsins. Um árið 2000 lærði hún nýja tækni þar sem hún gat tengt grafík við ljósmyndun sem hún hafði mikinn áhuga á. Málverkið hefur um 20 ár verið aukinn hluti af listsköpun Kristínar. Henni finnst áhugavert að vinna samhliða í þessa miðla.
Með hennar eigin orðum: ,,Þetta er fjórða einkasýningin sem ég sýni samhliða málverk og grafík. Reyndar finnst mér ég sjá aukin áhrif hvors miðils á hinn.“
Sýningin er sölusýning og stendur til 30.apríl. Hún er opin á opnunartímum Hannesarholts, alla daga nema sunnudaga og mánudaga, kl.11.30-16