
Kveðjutónleikar Phaedon Sinis
12. nóvember @ 20:00 - 22:00
Phaedon Sinis er grískur borðhörpu og hnéfiðlu leikari sem hefur verið búsettur á Íslandi undanfarin ár en hann er heimsklassa flytjandi í svokallaðri tyrkneskri Ottoman tónlistarhefð.
Þetta kvöld verður einmitt flutt klassísk tyrknesk tónlist kennd við Ottóman veldið og kallast í Tyrklandi Klassísk Tyrknesk Ottoman tónlist. Þessi tónlistarhefð nær árhundruði aftur í tímann og voru tyrknesku tónskáldin oft innblástur fyrir vestrænu tónskáldin m.a. Mozart. Tónlistarhefð þessi inniheldur framandi hljóðfæri og munu flytjendur leika á hefbundin hljóðfæri í þessum stíl.
Ásgeir Ásgeirsson hefur á undanförnum árum sótt tíma á tyrkneskt oud hjá nokkrum af færustu oud leikurum veraldar m.a. Yurdal Tokca, Enver Mete Aslan, Zeynel Demirtas og Taxiarchis Georgoulis fyrstur íslenskra hljóðfæraleikara. Phaedon Sinis er bandarískur/grískur
hljóðfæraleikari sem hefur numið og leikið þessa tónlist víðsvegar urm heiminn í áratugi en Phadeon leikur á tyrkneska borðhörpu og tyrkneska hnéfiðlu.
Á tónleikunum munu þeir leika klassísk verk úr þessari þessari tónlistarhefð en tónlist úr þessum ranni heyist mjög sjaldan á Íslandi.



