Kvöldstund með Ástu Kristrúnu Ragnarsdóttur og Valgeiri Guðjónssyni
01/03/2018 @ 20:00
| kr.3500Ásta Kristrún deilir með gestum sögum af formæðrum sínum sem lengi hafa búið með henni. Sögurnar hafa nú brotið sér leið til bókarinnar Það sem dvelur í þögninni sem er nýlega komin út. Hjá Valgeiri urðu sögurnar að söngvum og textum sem hann leikur fyrir gesti. Kvöldstundin mun því einkennast af sögum, söngvum og samveru eins og þeim hjónum í Bakkastofu er lagið.
Veitingastofurnar í Hannesarholti eru opnar þetta kvöld til kl.22. Í boði er að panta léttan kvöldverð á undan kvöldstundinni í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is