Kvöldstund með Vilborgu Davíðsdóttur
05/04/2018 @ 20:00
| kr.2500Skáldkonan Vilborg Davíðsdóttir fagnar 25 ára höfundarafmæli í ár en fyrsta bók hennar, Við Urðarbrunn, kom út árið 1993. Síðan þá hefur Vilborg skrifað sjö sögulegar skáldsögur sem líkt og sagan um ambáttina Korku hafa hlotið lofsamlega dóma, nú síðast þríleikinn um landnámskonuna Auði djúpúðgu, og einnig sannsöguna Ástin, drekinn og dauðinn, um ferðalagið með drekanum en svo nefndu þau maður hennar heilakrabba sem dró hann til dauða í blóma lífsins.
Í tilefni af tímamótunum býður Hannesarholt til kvöldstundar með Vilborgu fimmtudaginn 5. apríl kl. 20 þar sem hún mun spjalla við gesti í Hljóðbergi um feril sinn og skáldsagnaskrif í máli og myndum úr eigin lífi og frá söguslóðum bóka sinna.
Opið er í veitingastofum Hannesarholts til kl.22 eins og önnur fimmtudagskvöld. Gleðistund (happy hour) frá 17-19, lifandi tónlist frá 18.30-20, Pálmar Ólason leikur við píanóið á meðan gestir sem það kjósa njóta kvöldverðar á undan kvöldstundar með Vilborgu. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is