2026-03-02T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir
Borgartré
Laura Valentino opnar málverkasýningu sína BORGARTRÉ Í Hannesarholti laugardaginn 21.mars kl.14-16.
Laura Valentino er myndlistarkona sem fæddist í Bandaríkjunum árið 1955 og hefur verið búsett í Reykjavík síðan 1988. Hún er með meistaragráðu í myndlist frá Kaliforníuháskóla í Berkeley. Laura vinnur með gamla ljósmyndatækni, listgrafík, pastelmálun og heitt vax (encaustic). Verk hennar hafa verið sýnd víða, bæði innanlands og utan. Sjá frekari upplýsingar á slóðinni www.lauraval.com
Þessi sería er sjónræn túlkun á þéttbýlisskógrækt í Reykjavík. Viðfangsefni Lauru er að finna í skógum og almenningsgörðum í kringum Reykjavík, t.d. í Öskjuhlíð, Heiðmörk, Elliðaárdal og við Tjörnina. Trén virðast vera gróðursett af handahófi og tilvist þeirra er háð veðri og vindum, bæði náttúrulegum og pólitískum, en þau lifa af. Og fegurðin skín í gegn.
Laura kýs að mála tré sín með hágæða þurr-pastellitum, því þeir hafa mestan litarefnisstyrk og hjálpa til við að fanga töfra þessara ómótstæðilegu trjáa. Er ekki kominn tími til að færa heiminum sterkari liti ? segir hún.
———–
Urban Trees
Laura Valentino opens her art exhibit URBAN TREES in Hannesarholt Saturday March 21st at 2 pm- 4 pm.
Laura Valentino is a visual artist born in the United States in 1955 and based in Reykjavik since 1988. She has a Master of Arts degree from the University of California, Berkeley and works with alternative photographic processes, printmaking, pastel painting, and encaustic. Her work has been shown widely, both locally and abroad.
This series is a visual interpretation of urban forestry in Reykjavik. My subjects are found in the forests and parks around Reykjavik, namely Öskjuhlíð, Heiðmörk, Ellíðaárdalur and my favorite, Tjörnin. Sometimes haphazardly planted, their existence subject to harsh elements both natural and political, my trees are survivors. And the beauty shines through.
I choose to paint my trees with high-quality soft pastels as they have the highest pigment concentration of any art medium, perfect to portray the defiant beauty of these irresistible trees.
How about bringing a little much-needed color to the world?
See more information on her website at lauraval.com

Upplýsingar

Staðsetning

Go to Top