Hleð Viðburðir
Ragnheiður Ragnarsdóttir veitir leiðsögn um málverkasýningu sína HIMNASENDING þriðjudaginn 17.sept kl.14.30-16. Þetta er lokadagur sýningar hennar
Opnunartími Hannesarholts er alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11.30-16.00.
Verk Ragnheiðar voru framan af hugmyndaverk, mest innsetningar í rými, unnin í hversdagsleg, handhæg efni, s.s. dagblöð, myndbönd, ljósmyndir og nærtæka muni. Á síðustu árum hefur hún snúið sér aðallega að málverkinu og stöku ljósmyndaverkum. Verkin eru skyld innsetningum að því leyti að eitt verk kallar á annað og mynda þau ákveðið net, þar sem möskvastærð eða bilið á milli eininga er leið til að halda utanum myndflötinn. Verkin leita inn og út fyrir sig og saman tengjast þau í rýminu sem þau eru hluti af. Eldri verk Ragnheiðar mætti kalla tilraun til að kortleggja hversdagslegar athafnir, á meðan nýrri verkin eru laus undan oki skilgreininga. Hér tekur eitt við af öðru. Leitin að hinu óvænta heldur áfram og tilraunir til að fanga örlítið brot af fegurðinni.

Upplýsingar

Dagsetn:
17. september
Tími:
14:30 - 15:30
Viðburður Category:

Staðsetning

Hannesarholt
Grundarstígur 10
Reykjavík ,
+ Google Map