
Leiðsögn um ÖRsýningu Hörpu Másdóttur
30. maí @ 14:00 - 15:00
Harpa Másdóttir leiðir gesti um myndlistarsýningu sína í Hannesarholti, á síðasta degi sýningarinnar, 30. maí kl.14.
Sýningin Ör er persónuleg ferð þar sem minningar, umbreyting og seigla fléttast saman í litum, formum og áferð. Í verkum sínum tekst Harpa á við hið brothætta og sterka í senn; örin sem tíminn, reynslan og lífið sjálft skilja eftir. Sýningin er áminning um að ör eru ekki aðeins vitnisburður um ofangreint, heldur líka vitnisburður um það sem hefur gróið.
Snerting skilur eftir ör.
Fjarlægð líka.
Sýningin er sölusýning og stendur út mánuðinn. Hún er opinn á opnunartímum Hannesarholts, miðvikudaga – laugardaga kl.11.30-16.00.
