2025-12-15T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Leikhúslistakonur 50+ leiklesa verkið Eftir konsertinn eftir Odd Björnsson í leikstjórn Þórunnar Magneu Magnúsdóttur í Hljóðbergi 28. og 31.mars.

Leikendur eru: Esther Talía Casey, Hjalti Rúnar Jónsson, Hlynur Þorsteinsson, Íris Tanja, Jakob Jónsson, Jóhanna Norðfjörð, Kjartan Darri Kristjánsson, Sigurjóna Sverrisdóttir, Þór Tulinius og Ólafur Ásgeirsson, sem vantar á myndina.

Verkið er hluti af leiklestrum hópsins á verkum Odds Björnssonar í Hannesarholti á vorönn. Næsta verk sem tekið er fyrir er Þrettánda krossferðin í leikstjórn Sveins Einarssonar 12. og 14. apríl.

Upplýsingar

Staðsetning

  • Grundarstígur 10
    Reykjavík, 101 Iceland
    + Google Map
  • Phone 5111904
Go to Top