Hleð Viðburðir
Kvennaráð (áður Erfðagóssið) eftir Sellu Páls verður leiklesið í Hljóðbergi Hannesarholts 25.febrúar kl.16 og síðdegis helgina eftir. Sveinn Einarsson leikstýrir en hann hefur leikstýrt yfir 100 leiksýningum heima og erlendis.
Leikritið Kvennaráð fjallar um Þorgerði, áttræða ekkju sem var stoð og stytta áhrifamikils manns í fimmtíu ár og nú vill hún breyta til. Samband hennar við einkadótturina, forstjórann Birnu, er þvingað vegna tengdasonarins sem ekkjan grunar um græsku. Er ekkjan fer að taka á eigin málum bregst Birna illa við og ásakar hina víetnömsku heimilishjálp Kim um samsæri. En þegar Birna þarf a glíma við örðugar aðstæður koma móðir hennar og Kim henni á óvart.
Leikstjóri: Sveinn Einarsson
Höfundur: Sella Páls
Leikarar: Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Guðrún Þórðardóttir og Lieu Thuy Ngo
Búninga og sviðshönnuður: Helga Björnsson
Leiklesturinn er styrktur af Reykjavíkurborg. Leikhúslistakonur 50+ standa fyrir uppsetningunni.
Tilboð á kaffi of vöfflu með rjóma á 1000 krónur í veitingastofunum á undan leiklestrinum.
Umfjöllun Bryndísar Schram og Silju Aðalsteinsdóttur má finna á fésbókarsíðu Hannesarholts.

Upplýsingar

Dagsetn:
25/02/2018
Tími:
16:00
Verð:
kr.2000
Viðburður Category:
Vefsíða:
https://www.tix.is/is/buyingflow/tickets/5587/

Skipuleggjandi

Leikkonur 50+

Staðsetning

Hljóðberg