Hleð Viðburðir

1. ágúst opnar myndlistakonan Linda Steinþórsdóttir sýningu með nýjustu verkum sínum í Veitingastofum og 2. hæð Hannesarholts. Sýningin sýnir málverk í ýmsum stærðum og eru þau unnin í akrýl og strúktúrgel á striga.

Opnunin hefst kl. 17:00

Linda hefur verið búsett í Austurríki undanfarin 29 ár, og starfað þar sem myndlistakona undir nafninu L.Stein, við góðan orðstýr. Leiðarminni í verkum Lindu er leikur með áferð, en áhrif íslenskrar náttúru á listsköpun hennar eru greinileg.

Sýningin er opin milli kl. 11:30 og 17:00 alla daga vikunnar og stendur til 18.ágúst.

Sýningin er sölusýning.