2026-03-03T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Málverkasýning Hlyns Helgasonar, 12 rendur, stendur yfir í veitingastofunum til 12 maí, olíumálverk og blekmálverk sem unnin eru eftir ákveðnu kerfi og eru hvert um sig byggt upp af tólf röndum. Í olíuverkunum er þunn málningin látin leka á kerfisbundinn hátt eftir að liturinn hefur verið lagður. Að hluta til ræður regla byggð á aukastöfum útreikninga á ummáli hrings, Pí, uppbyggingu verkanna. Hlynur tekur á móti gestum laugardaginn 6.maí kl.14.
Verkin eru til sölu.

Upplýsingar

Go to Top