2026-03-03T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Ástríður Alda og Bjarni Thor kíkja í gamlar tónleikaskrár í Hannesarholti á hádegistónleikum sunnudaginn 21.október kl.12.15. Efnisskráin samanstendur úr vel völdum aríum og lögum sem þau hafa áður flutt á tónleikum. Tónleikarnir eru liður í viðburðum Óperudaga í Reykjavík í samstarfi við Hannesarholt.

Bjarna Thor þarf vart að kynna fyrir íslenskum tónlistarunnendum en hann hefur átt mikilli velgengni að fagna á erlendum óperusviðum. Hann hóf söngferil sinn í Vín og eftir að hafa starfað þar fastráðinn, syngur hann í lausamennsku við mörg stærstu óperuhús Evrópu, m.a. Berlín, París, Feneyjar, Verona, Róm, Lissabon, Barcelona, Amsterdam, Hamborg og München.

Eftir tónleikana gefst tónleikagestum kostur á að hlýða á stutt spjall við Bjarna þar sem fulltrúi Óperudaga forvitnast um nýjasta ævintýri hans í Kassel og hægt verður að spyrja hann spjörunum úr.

Upplýsingar

Staðsetning

  • Grundarstígur 10
    Reykjavík, 101 Iceland
    + Google Map
  • Phone 5111904
Go to Top